So saturday night, the big night, date night, saturday night.... SATURDAY NIGHT
Klukkan
03.05.2009 07:14:58 / stinaogjolli

The end is near

Jæja bara einn dagur eftir í G-inu. Ég fer og sel bílinn á morgun og svo bara leggjum við í hann á mándaginn til stóra eplisins. Það verður skrýtið að fara héðan.
Ég var svo mikill snillingur í gær. Ég fór með þau aðeins út í smá göngutúr í kringum 11 um kvöldið (á föstudegi). Svo þegar við komum tilbaka þá fatta ég að ég hafði týnt lyklinum einhvers staðar á leiðinni. Ég var bara í stuttbuxum og bol og ekki með neitt á mér. Þannig að ég eyddi hálftíma í panik og reyndi að leita að lyklinum í kolniðarmyrkri. Það náttúrulega gekk ekki þannig að ég fór að hurðinni og ætlaði að athuga hvað ég gæti gert. Fatta ég þá ekki að svefnherbergisglugginn sem er hjá hurðinni var ólæstur þannig að ég klifraði bara inn.Flott Kristín. Um að gera að skilja gluggann eftir ólæstan svona alein í Bandaríkjunum í ekkert besta hverfi í heimi. En það reyndar kom sér vel :D
Svo fann ég lykilinn í morgun á götunni haha
Það er næstum komið á hreint hvar við munum búa heima og vonandi verður það komið alveg á hreint áður en ég kem heim. Búslóðin okkar kemur 7. maí þannig að við þurfum að hafa einhvern stað til að setja hana.
Svo tekur bara atvinnuleysi við :) neinei ég er nú að vona að ég fái einhverja vinnu í sumar. Svo er seinasta önnin mín í kennó. Ég er nánast búin að ákveða að fara í sálfræði eftir þetta nám. já ég held það :)
Jökull fékk hest í útskriftargjöf frá pabba sínum. Hann heitir Hvimur. Hérna er mynd af honum:
Hann er ennþá folald og ekkert smá úfinn og sætur :) Okkur finnst hann æði. Verður svo gaman ef tekst að temja hann og þá getum við farið á útreiðartúra. Bara skemmtilegt. Skrýtið að hann skuli eiga hest allt í einu haha
Svo ætlum við til Egyptalands með ömmu strákana í nóvember. Garpur og Ingunn ætla með. Djöfulli verður það geggjað. Ég get ekki beðið. Mig hefur alltaf langað til Egyptalands.
Þannig að veturinn lítur bara mjög vel út held ég haha
Ég kvíði því ógeðslega að þurfa að setja hundana í einangrunina. Það verður ekki auðveldur mánuður. Ég hef svosem engar áhyggjur af þeim svo lengi sem þau fá að hittast nóg sem þau eru búin að fullvissa okkur um að verði. Þetta verður örugglega mun erfiðara fyrir mig en þau haha
Það verður svo geggjað að kynna alla fyrir þeim. Ég er svo ástfangin af þeim að það hlýtur bara að vera að það verði það allir :D Þetta eru svo æðislegir hundar.
En ég hugsa að ég ætli að láta þetta verða síðasta færslan í bili. Ég fæ mig aldrei til þess að blogga á Íslandi þannig að ég ætla að setja þetta á bið þangað til eitthvað eftirtektarvert gerist. Ég set hvort eð er myndir og svona alltaf inná facebook hvort eð er.
Hlakka til að hitta alla :D

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.03.2009 01:34:48 / stinaogjolli

Geldingin ógurlega

Jæja, nú er Keano búin að fara í geldinguna. Hann fór í morgun og hélt sko starfsfólkinu við efnið í allan dag var okkur sagt. Hann ýlfraði og ýlfraði og vældi og vældi eins og honum einum er lagið hahaha þau sögðu að það væri greinilega að hann byggi við mikið yfirlæti hjá okkur og vanur góðu :)
En aðgerðin gekk mjög vel og við fengum að ná í hann áðan. Hann vorkennir sér ekkert eðlilega. Það er eiginlega hálf skondið en við ofdekrum hann alveg þokkalega. Hann er sofandi núna og sofnaði loksins þegar við gáfum honum smá að borða. Áttum að bíða aðeins lengur en hann var greinilega að sálast úr hungri og líður mjög vel núna.
En það fyndna við þetta allt er hvernig Zizou tekur á þessu. Hún var svo áttavilt í allan dag útaf því að Keano var ekki hérna. Svo þegar hann kom heim og hún sá hvað honum leið illa þá alveg fór hún í keng kellingin og var alltaf að kíkja á hann og vildi sleikja hann útum allt. Þetta var greinilega svo erfitt fyrir hana tilfinningalega að hún var alltaf að koma til okkar og vildi fá knús og smá athygli hahaha Þetta er ótrúlegt. Ég held að hún sé með meiri tilfinningar heldur en meðalmaðurinn. Mjög skondið.
En ég var að kaupa mér tvo skó sem mér finnst svo geggjaðir. Verð bara að monta mig.
Adidas Menswear Game Mid
og
Leather Ankle Wrap Skimmer
Þeir eru geggjaðir :D
En hey, Guðrún, þú varst búin að lofa að kommenta sko. Ekki sátt.

» 7 hafa sagt sína skoðun

23.03.2009 05:17:15 / stinaogjolli

Heimkoma - Flórida - annað ánægjulegt

Ég býst nú við að flestir sem lesa þetta viti að við erum að fara að flytja heim. Við erum rosalega ánægð með þá ákvörðun og hlökkum endalaust til. Það er svo fyndið að þegar maður fer að hugsa um alla góðu hlutina heima þá bara getur þetta ekki verið erfið ákvörðun. Ég hlakka t.d. rosalega til að leyfa öllum að njóta þess að kynnast flottustu og skemmtilegustu hundum í heimi, að geta hitt alla eins oft og ég vil, fá einhvern með mér í átak (býður sig einhver fram? ég er megaskemmtileg í átaki sko), geta talað íslensku í vinnunni, farið í mat til ma og pa sem elda besta mat í heimi, rústað Matta og Jakobi í körfu, farið með emblu og co í sund, fengið alla í heimsókn í fínu íbúðina okkar (sem við reyndar vitum ekkert hvar verður en það kemur í ljós) og bara allt. Fara í útileigur, hafa bjart allan sólarhringinn, grilla gott lambakjöt, fara í læri til tengdó og allesammen.
Jökull ætlar að vera í Víking sem er bara eðal.
Við vorum til Flórída í yfir viku. Keyrðum fyrst til Jacksonville sem er efst í Flórída og sóttum Kidda. Það var ekkert voðalega heitt þar þannig að okkur kveið smá fyrir. En svo keyrðum við til Orlando og þá var strax komið betra veður. Strákarnir skelltu sér í WetnWild á meðan ég rölti um gamla bæinn í Orlando með hundana.
Svo keyrðum við niður til Fort Lauderdale sem er bærinn þar sem Jakob fór í high school. Þar lágum við á ströndinni í fjóra tíma með enga sólarvörn vegna þess að við ætluðum að vera svo gífurlega öflug í taninu. Það gekk bara svo vel að ég og Kiddi skaðbrenndumst og vorum bara í fullri vinnu við að bera aloe vera á okkur. Þetta var alveg rosalegt sko. Jökull varð bara smá rauður enda með ágætis grunn eftir Mexico ferðina. Við fórum líka í Casino þar sem var helvíti flott. Ég tapaði 11 dollurum í Black jack og er ennþá að jafna mig eftir það. Jökull vann svo 120 dollara í live póker þarna og Kiddi tapaði einhverju. Svo í Miami fóru strákarnir í annað casino og þá tapaði Jökull öllum gróðanum.
Seinasta daginn þarna fórum við með hundana í svona dogpark þar sem var vatn og hundarnir gátu synt. Við leyfðum þeim að hlaupa þar um en bjuggumst ekkert við því að þau myndu synda enda hafa þau aldrei verið það mikið fyrir vatn. En svo eftir smá stund þarna þá bara lét Zizou sig vaða útí vatnið og synti eins og hún hefði aldrei gert neitt annað. Hún var reyndar voðalega hrædd í framan en synti ekkert smá langt útí en hún virtist ekki fatta alveg strax að anda með nefinu og var ekkert smá kindarleg í framan hahaha við hlógum og hlógum að henni. Svo eftir að hún var alveg komin með þetta á hreint þá loksins þorði Keano að láta sig flakka. Hann er svo mikil skræfa í öllu svona, hann er t.d. mjög lofthræddur og pælir í öllu áður en hann reynir við það. En hann fór á eftir henni og beit í skottið hennar og synti alveg límdur við rassinn hennar. Það var eins og skottið væri svona öryggistækið hans og hún leyfði honum alveg að gera þetta.
Við vorum ekkert smá stolt og ég var skíthrædd um það allan tímann að þau myndu drukkna hahaha doldið áhyggjufull mamma :)
Svo keyrðum við til Miami sem er alveg hreint geggjuð borg. Það er svo mikið af háhýsum þarna og svo er hálfgerð eyja sem heitir South Miami beach þar sem allar strendurnar eru og brjálæðislega flott hús. Það eru mjög margar stjörnur sem búa þarna. Við fórum í dýragarð, fórum á fullt af góðum veitingastöðum, versluðum og svo seinasta daginn fórum við í smá sólbað haha við vorum búin að vera svo brennd þangað til.
En þetta var alveg æðisleg ferð og svo gott að komast í frí.
Við keyrðum svo alla leiðina frá Miami til Greensboro á 13 og hálfum tíma. Það er sko alveg fáránlegt að takast það. Við stoppuðum bara til að pissa og fylla bílinn. En það var gott að komast heim aftur.
Núna erum við á fullu að pakka, panta gám, sjá til þess að hundarnir séu með allar sprautur og tjékk, panta flugför og bílaleigubíla og bara alla þessa milljón hluti sem þarf að gera þegar maður flytur heila búslóð heim. Það er ekkert smá mikið sem þarf að pæla í og gera.
Svo er ég líka að drukkna í lærdómi. Ég er að gera lokaverkefnið mitt sem gengur svo hægt fyrir sig. Þetta tekur ekkert smá langan tíma og allir hinir áfangarnir sitja mjög á hakanum á meðan. Ég þarf bara að vera dugleg inná milli alls hins að læra. Þetta reddast.
Annars er það bara urban á morgun að versla smá föt og svona smotterí :) og svo fer Keano í geldingu á þriðjudaginn greyið. Ræktandinn hans krafðist þess að hann yrði geldur áður en hann færi úr landi þannig að við eiginlega neyðumst til að gera þetta núna. Vonandi gengur það vel.
En já eitt, ef einhver veit um vinnu fyrir okkur þá verðið þið að láta okkur vita. Við erum að pæla í svona 50-70% vinnu :) Má vera bara hvað sem er eiginlega.

» 4 hafa sagt sína skoðun

26.02.2009 16:50:07 / stinaogjolli

Fréttir - Fréttir

Jæja. Ætli það sé ekki best að blogga smá og koma með nýjustu fréttirnar.
Jökli var ekki boðinn samningur hjá Chicago. En það er allt í lagi. Ég held reyndar að það sé bara fyrir bestu. Þjálfarinn þarna virkaði eitthvað svo lélegur og leiðinlegur, eða sem sagt hvernig hann þjálfar. Held að það henti ekki nógu vel.
Þannig að hann er á leiðinni heim núna og ég get ekki beðið. Hann kemur um miðnætti hingað. Hann er búinn að tala við umbann sinn og hann er farinn á fullt að tala við lið og eitthvað crazzzzyness þannig að við erum pollróleg yfir þessu öllu. Þetta var bara fyrsta stigið í planinu :)
Ég hlakka svo til að sjá Zizou þegar Jökull kemur heim aftur. Hún nefnilega er hin mesta dramadrottning og hikar ekki við að fara í fýlu ef henni finnst vera komið illa fram við sig. Þannig að við búumst við nokkra daga fýlu og Jökull þarf örugglega virkilega að vinna sér inn ást hennar aftur :) En það mun hafast á endanum enda eru þau alveg hrikalega tengd og hafa alltaf verið.
Keano tekur ekkert eftir svona hlutum. Það skiptir hann voðalega litlu máli hver hugsar um hann ef hann fær nóg að borða haha Hann er nú samt voðalega tengdur mér enda var ég mest með hann í byrjun.
Ég hef svo sem lítið að segja annað en það hversu æðislegt það var að mamma og Hafrún skyldu koma hingað og hugsa um þau. Ég náði að vinna í lokaverkefninu mínu, detta í það (með tilheyrandi þynnku þrátt fyrir að ég drakk ekkert það mikið), sá konuna hans Jakobs sem er alveg æðisleg og með eindæmum góður kokkur, sá Jakob spila sem er alltaf geggjað, knúsaði Emblu og kenndi henni að synda (það er samt ekki hægt að knúsa hana nógu mikið þannig að ég hefði viljað gera það meira) og fullt fleira skemmtilegt. Svo þegar ég kom hingað þá fórum við að versla í urban sem er alltaf gaman. Ég á reyndar ekki krónu með gati en mamma gaf mér sólgleraugu sem ég er einstaklega ánægð með.
En ég læt vita þegar það kemur eitthvað meira í ljós með Jökul.

» 7 hafa sagt sína skoðun

27.01.2009 04:51:11 / stinaogjolli

Zizou og Kristín hjúkkur

Ég fór með Keano til læknisins í dag til að fá síðustu bólusetningarsprautuna sína. Það gekk allt mjög vel og kom í ljós að hann er orðinn 27,5 pund sem eru í kringum 13 kg.
Þegar við komum heim þá fannst mér hann vera eitthvað svo slappur. Það hélt alltaf áfram að versna og það eina sem hann vildi gera var að sitja útí horni og væla. Ég mátti mjög lítið koma við hann og hann hætti ekki að væla. Ef ég reyndi að fá hann til að labba um þá setti hann skottið undir sig (sem hundar gera þegar þeir eru hræddir og Keano hefur aldrei sett skottið undir sig, ekki einu sinni ef 3-4 hundar koma hlaupandi í áttina að honum) og var allur svo hokinn og eitthvað. Ég dreif mig með hann til læknisins áður en það lokaði og Keano vældi alla leiðina og sérstaklega ef ég hélt á honum. Þegar við komum til læknisins þá sagði hann að þetta væru greinilega ofnæmsiviðbrögð við bólusetningunni. Hann fékk sterasprautu og einhverjar pillur. Þetta getur verið lífshættulegt ef þeir fá ekki sterasprautuna þannig að ég þakka bara fyrir að vera svona móðursjúk haha
Þegar við komum heim aftur var hann svo lítill í sér. Hann er alltaf svo hraustur og hugrakkur og það var hrikalega erfitt að sjá hann svona. Hann vildi bara liggja hjá mér og láta mig klappa sér og knúsa. Hann alveg hrjúfraði sig að mér sem var hrikalega sætt.
Hann er allur að koma til núna og er farinn að labba aðeins um og svona. Þannig að þetta verður allt í lagi.
Zizou kemur mér alltaf jafn mikið á óvart. Hún kom ekki með okkur til læknisins í fyrsta skiptið þannig að ég þurfti að loka hana inní búri. Ég bjóst við því að hún yrði mjög fúl útí okkur þegar við kæmum tilbaka. Ef hún er fúl þá lætur hún það eiginlega alltaf bitna á Keano og fer að slást mjög harkalega við hann. Hún gerði það sko ekki þegar við komum heim. Hún var eitthvað svo sæt og róleg sem mér fannst mjög skrýtið. Svo var hún alltaf að þvo Keano og sleikja hann útum allt. Hún fór aldrei frá honum og sleikti og sleikti. Þetta var fyrsta merkið sem ég sá um að það væri eitthvað ekki í lagi. Hún er svo æðisleg, það er alveg ótrúlegt.
Hún er ennþá að þrífa hann og passa upp á hann. Við fórum aðeins út áðan og hún sleikti hann nánast allan tímann hahaha Það er sko ekki tekin pása :)
Hún er rosalega næm á þessa hluti. Ef ég t.d. fer að gráta (sem náttúrulega gerist mjög sjaldan ;) bara yfir stöku þáttum og svona) þá kemur hún alltaf til mín og leggst hjá mér og horfir svo fallega á mig svona eins og hún sé að reyna að hugga mig. Það er alveg æðislegt og það er sko ekki auðvelt að halda áfram að gráta þegar maður fær svona meðferð haha

Annars er Jökull í Flórída núna. Hann fór í morgun. Þeir verða að fara svona á undirbúningstímabilinu útaf því að það er of kalt í Chicago. Jökull er kolfallinn fyrir Chicago held ég. Oooo mig langar svo að fara þangað. Ég náttúrulega tók mig til og fór að leita að íbúðum á netinu og er búin að finna nokkrar geggjaðar og flestar rétt hjá ströndinni haha komin aðeins fram úr sjálfri mér. En það verður bara að hafa það.
Jökull var í þrjá daga í Chicago og þeir fóru í alls konar læknispróf og svo fóru þeir í bíb-test (bíb, you have reach level 8, bíb). Jökull var næst seinasti til að hætta sem verður nú að teljast mjög gott held ég. Hann fór upp í 14 eitthvað. Hann hefur ekki getað hreyft sig í tvær vikur útaf því að hann tognaði á hnénu. Mjög gaman. Vonandi lofar þetta góðu, hver veit.

Mamma mín er alveg æðisleg. Hún ætlar að koma hingað 8. feb. og passa Zizou og Keano fyrir okkur á meðan ég fer heim og vinn í lokaverkefninu mínu. Þetta er náttúrulega bara geggjað og reddar öllu árinu fyrir mér. Svo verður svo gaman að leyfa Keano og Zizou að kynnast henni. Ég er núna á fullu að skrifa niður allar leiðir sem hún gæti þurft að keyra útaf því að það er ekkert grín að rata hérna ef maður er óvanur. En hún reddar þessu konan.
Svo gaf hún mér svo geggjaða lopapeysu sem hún prjónaði alveg sjálf. Hún passar mér fullkomlega og er bara fullkomin. Ég setti myndir af henni inná andlitsbókina.
Ég ætla að reyna að lesa smá. Ég hef ekki haft mikla einbeitingu til að læra eftir fíaskóið með Keano.

» 6 hafa sagt sína skoðun

20.01.2009 23:26:39 / stinaogjolli

MYNDIR

Ég er búin að setja inn nýjar myndir á síðuna hjá hundunum. Það er www.zizouogkeano.dyraland.is :) Kíkið á þær.
Það nefnilega byrjaði að snjóa hérna í nótt þannig að hundarnir fengu að sjá snjó í fyrsta skipti. Þeim fannst það geðveikt og léku sér á fullu og borðuðu mikið af snjó. Það var æðislegt að sjá þau. Vonandi munum við síðan komast til Chicago svo þau geti verið meira í snjónum. Þessi snjór er nefnilega ekkert til að tala um þannig séð. Þau gátu ekkert verið að grafa eða neitt þó að Zizou hafi nú alveg gert heiðarlegar tilraunir til þess.

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.01.2009 21:04:49 / stinaogjolli

Jámjám

Það fer óendanlega í taugarnar á mér nánast allar auglýsingarnar hérna úti þessa dagana. Obama notaði mikið frasann Yes, we can og núna eru ALLAR auglýsingar með þetta í þeim. Ég fæ alltaf þvílíkan kjánahroll þegar þetta kemur.
Heyrðu, geðveikar fréttir.... mamma og líklegast Matti ætla að koma hingað út og passa hundana fyrir okkur :D Ég á í alvöru bestu mömmu og fjölskyldu í heimi!!!!!! Þau munu koma rétt áður en ég kem heim og fara nokkrum dögum eftir að ég kem. Það verður æðislegt að fá þau hingað og vera með mér hérna þó það séu bara nokkrir dagar og svo líka frábært að geta komist heim og unnið í lokaverkefninu mínu. Þetta er svo mikill léttir. Það verður líka gaman fyrir Keano og Zizou að kynnast þeim enda eðalhundafólk þannig að ég hef engar áhyggjur af því.
Sökudólgurinn í púslmálinu er fundinn. Ég greip Keano glóðvolgan í morgun með 2 púsl upp í sér og skömmustusvip hahaha Guð má vita hversu mörg eru horfin.
Jökull fékk að vita planið sitt í morgun. Þeir verða nánast non-stop á ferðalagi frá 24. jan til 15. mars. Það er rosalega langur tími en það verður örugglega geggjað gaman hjá honum. Vera bara í góðu veðri og gera það sem honum finnst skemmtilegast, spila fótbolta. Hann mun fyrst fara til Flórída, svo Mexikó, LA og Arizona. Þetta eru allt geggjaðir staðir. Ég er ekkert öfundsjúk :D Þetta hljómar eiginlega alltof vel.
Gaman gaman.

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.01.2009 06:09:43 / stinaogjolli

Letilíf

Ég er búin að setja inn könnun :D
Ég er búin að komast að því að það er sko ekki auðvelt að púsla með tvo hvolpa í íbúðinni. Jökull gaf mér geðveikt púsl í jólagjöf sem ég sit sveitt yfir þessa dagana. Það eru samt alltaf púsl að hverfa á mjög undarlegan hátt. Ég er búin að týna allavega þrem púslum á tveim dögum. Ég hef ekki hugmynd hvert þau geta hafa farið ;) Svo finnst Zizou voðalega gaman að þefa af púslinu þannig að það er alltaf eitthvað að detta á gólfið eða ruglast haha
Það er voðalega lítið að frétta af Chicago málinu ennþá. Eða við vitum að Jökull fer þangað á laugardaginn og svo fer liðið víst stuttu eftir það til Florida og kannski eitthvert til útlanda að æfa. Það er of kalt í Chicago til að æfa þar.
Það þýðir að ég mun ekki fara strax til Chicago og verð hérna í Greensboro með ofdekruðu hundana okkar. Ég á pantað flug 11. feb. heim en við verðum að bíða aðeins með það þangað til við vitum meira um það hversu lengi Jökull verður og það allt og kannski vona eftir kraftaverki hahaha Vonandi reddast það. Ef ég kemst ekki heim verð ég nefnilega að fresta lokaverkefninu mínu sem væri mjög svekkjandi.
Keano er orðinn 25 pund. Zizou er 41 pund þannig að hann fer alveg að ná henni bráðum. Hann er að verða svo stór og flottur. Við förum á hverjum degi í dogpark og það er algjör brandari að horfa á hann vappa þar um og þykjast vera voðalega stór og sterkur. Hann geltir voðalega karlmannlega en um leið og einhver geltir á hann þá þýtur hann í burtu og felur sig á bak við mig hahaha Mjög fyndið.
Mér líður voðalega vel hérna með hundunum. Þau halda manni alveg uppteknum :) Ég fór síðan í bíó í kvöld og pantaði mér góðan mat. Mjög ljúft líf. Ég vildi samt stundum að ég væri aðeins uppteknari. Ég kemst nefnilega ekki inná skránar mínar uppí skóla útaf því að það er eitthvað að lykilorðinu mínu en ég ætla rétt að vona að það lagist í næstu viku. Ég dregst alltaf meira og meira aftur úr sem er ekki þægileg tilfinning.
Jökull fær að vita meira frá liðinu á mánudaginn og getum þá vonandi farið að plana okkur betur. Það er doldið óþægilegt að liggja svona í lausu lofti.
En jæja, ég ætla að halda áfram að kúra með hundunum og horfa á CSI.

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.01.2009 02:34:22 / stinaogjolli

Chicago here I come

Jökull var valinn af Chicago Fire liðinu í draftinu. Hann var reyndar valinn doldið seint en það ætti ekki að skipta það miklu máli.
Núna er það bara undirbúningstímabil þar sem hann sýnir hvað hann getur.
Eftir svona 4-5 vikur af undirbúningstímabilinu kemur svo í ljós hvernig samning hann fær og þá verður tekin endanleg ákvörðun :)
Hann á að mæta þangað upp eftir 24. janúar. Flugið hans hingað út aftur er 23. janúar þannig að hann gæti þurft að breyta fluginu og koma einum degi fyrr.
Ég veit í rauninni ekkert meira strax, vonandi getur Jökull talað betur við umbann á morgun svo við vitum eitthvað meira.
Mig langar náttúrulega rosalega til að fara með honum 24. janúar en ég veit ekkert hvernig það fer. Ég þarf að keyra þangað með hundana og líka svo við höfum bílinn hjá okkur. En ég veit ekki hvort hann fái kannski bara hótelherbergi til að byrja með eða hvað. Ég fer samt til Íslands 11. feb þannig að hann eiginlega þarf að redda íbúð eða hótelherbergi þar sem má hafa hunda svo hann geti séð um þá á meðan ég er heima.
Úfff þetta er eitthvað svo skrýtið, að vera bara að fara að flytja og það til Chicago. En kannski ekki þannig að maður getur einhvern veginn ekki alveg farið að hlakka til strax. Ææ þetta fer eins og þetta fer hahaha Ég er að reyna að æfa mig í að vera þolinmóð, það er ekki beint mín sterkasta hlið haha
Samt er svo fyndið hvað hugurinn fer af stað og maður fer að plana. Ég er búin að kíkja á nokkra skóla á netinu, það eru sko ógeðslega margir góðir skólar í Chicago þannig að ég ætti ekki að eiga erfitt með að komast í skóla þarna.
Svo er ég búin að skoða hversu lengi ég verð að keyra þangað, hvað u-haul kerra kostar undir allt dótið okkar, flugmiðar þangað og alls konar tilgangslausar upplýsingar haha
Það sem er magnað er hversu ógeðslega kalt er þarna núna. Það er sko -23°C akkúrat núna en það stendur að það feels like -36°C. Þetta er svakalega kalt. Fólk fer víst ekkert útúr húsi nema virkilega þurfa þess. En þetta verður gott fyrir Zizou og Keano. Þetta verður algjört himnaríki fyrir þau hahaha
Svo verður mjög heitt þarna á sumrin þannig að við fáum bæði.
En núna er bara að bíða og sjá hvað umbinn segir. Ég læt vita um leið og við vitum meira og þegar það er komið meira plan hjá okkur.

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.01.2009 03:44:51 / stinaogjolli

Home alone again

Þá er Jökull kominn og farinn.
Leikur númer 2 gekk allt í lagi sagði hann. Það er náttúrulega mjög erfitt að spila undir svona aðstæðum. Þetta eru allt strákar sem eru að reyna að sýna sig þannig að það er mikið um það að strákar séu að einoka boltann og spila engan bolta.
Leikur númer 3 byrjaði mjög vel hjá honum en eftir 15 mínútur meiddist hann á hné og fór útaf þegar 25 mínútur voru eftir af leiknum. Honum gekk samt mjög vel fyrir meiðslin þannig að þetta var ekki alslæmt.
Hann fór á fund hjá einu liði sem er mjög áhugasamt og svo hefur hann heyrt um 3 önnur lið sem eru að pæla í honum. Ég vil ekki vera að segja hvaða lið þetta eru útaf því að maður veit í rauninni ekkert.
En núna er bara að bíða eftir morgundeginum. Klukkan 2 á okkar tíma verður draftið og kemur þá í ljós hvert eða hvort við séum að fara eitthvað.
Ég verð að segja að þetta fótboltalíf er ekkert mjög auðvelt. Mér reyndar finnst þessi partur allt í lagi og bara spennandi en það eru svo mörg ef. Eins og ef hann verður draftaður í einhverju liði þá þarf það ekkert að vera að við verðum þar. Kannski fær hann ekki nógu góðan samning og neitar þeim (það kemur ekki í ljós fyrr en eftir undirbúningstímabilið), kannski er honum ekki boðinn samningur eftir undirbúningstímabilið, kannski vilja þeir lána hann eitthvað.
Þannig að við vitum í rauninni ekkert.
Ég er á fullu að pakka og við munum setja búslóðina í geymslu fyrst um sinn. Ef hann er draftaður þá fáum við held ég íbúð eða hótelherbergi á meðan á undirbúningstímabilinu stendur og eftir það, ef við verðum áfram þar, þá munum við koma hingað aftur og í dótið okkar.
Svo ef hann er ekki draftaður þá er hann kominn með umba sem ætlar að reyna að senda hann á try-out í Evrópu og svo er líka alltaf möguleiki að fara í a-league sem er deildin fyrir neðan mls. Hann kemst pottþétt þangað fyrir góðan pening þannig að þetta er ekkert stress sko. Bara svo mikil óvissa :) En ég er að læra að lifa svona hahaha
Ég er búin að setja nýjar myndir inná www.zizouogkeano.dyraland.is og svo skrifaði ég líka í dagbókina þar um Zizou og Keano ef þið viljið kíkja.
Ég læt vita hvað kemur úr þessu á morgun :D Krossa putta!!!!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

11.01.2009 06:07:50 / stinaogjolli

Fyrsti leikur búinn

Ég tognaði svo illa í dag :( Við vorum á leiðinni í dogpark, ég og hundarnir þegar ég missteig mig svo illa. Ég heyrði þvílíkan smell í ökklanum. En ég er svo góður hundaeigandi að ég druslaði mér nú samt í hundagarðinn svo þau gætu fengið útrás :)
Fyrsti leikurinn hans Jökuls er búinn. Það gekk mjög vel segir hann. Hann byrjaði inná (sem er góðs vitis) og spilaði fyrsta hálfleik. Þeir spila oftast bara einn hálfleik til að gefa öllum tækifæri.
Þeir unnu 1-0 og hann átti stoðsendinguna. Þetta var víst geðveikt flott stoðsending. Hann chippaði yfir varnamann og boltinn lenti beint fyrir framan gaurinn sem skoraði.
Ég held að þetta sé mjög sterkt fyrir hann.
Það er annar leikur á morgun. Vonandi gengur hann jafn vel.
Ég er búin að vera dugleg að pakka. Stofan er eiginlega búin. Ég ætla samt að nota nokkra daga í að læra núna. Ég er að fara að vinna í lokaverkefninu mínu næstu daga. Ég ætla að skrifa meira um það einhvern tímann þegar ég er í stuði.
Jæja, ég læt vita hvernig gengur á morgun hjá stráknum.  

» 3 hafa sagt sína skoðun

09.01.2009 23:21:33 / stinaogjolli

Ein í búinu

Þá er maður orðinn home alone.
Elísabet fór í gær og Jökull í morgun. Það er búið að vera alveg æðislegt að hafa hana tengdó hjá okkur. Hún bjargaði mér algjörlega þegar Keano var nýkominn og Jökull alltaf að keppa einhvers staðar.
Jökull er farin til Flórída og kemur aftur á þriðjudagskvöldið. Hann er semsagt í combine-inu þar sem hann mun spila þrjá leiki. Þetta eru einhverjir 60 leikmenn sem eru þarna og skipt í fjögur lið og allir spila við alla. Þarna eru allir þjálfarar og umboðsmenn og skoða leikmennina.
Það skiptir miklu máli að standa sig þarna. En ég hef engar áhyggjur af honum stráknum.
Það eru tvær stórar umboðsskrifstofur búnar að hafa samband við Jökul og vilja að hann skrifi undir. Hann ætlar að tala við þá betur í combine-inu. Spennandi hvað kemur útúr því.
Svo 15. jan er svo draftið. Það er í hádeginu og þá semsagt kemur í ljós hvort hann verði draftaður. Það verður skrýtið að horfa á í sjónvarpinu hvert maður mun flytja, eða hvort maður muni flytja eða hvað haha
Svo ef hann er draftaður þá höfum við bara eitthvað í kringum 10 daga til að flytja og koma okkur á nýja staðinn. Ég er byrjuð að pakka til að flýta fyrir. Jökull mun nefnilega bara vera heima eitt kvöld á þriðjudaginn og svo fer hann til Íslands í viku. Það verður æðislegt fyrir hann. En ég sit uppi með að pakka öllu í íbúðinni og sjá um hundana hahaha En það er bara gaman.
Ég fór með hundana í dogpark áðan. Það er svona garður þar sem maður getur leyft hundunum sínum að hlaupa um með öðrum hundum og leika. Zizou finnst æðislegt þarna og hleypur endalaust um þarna og leikur sér. Ég leyfði Keano að vera frjáls í fyrsta skiptið í dag. Hann stóð sig eins og hetja strákurinn. Hann hljóp um allt og lék sér við hundana. Það var svo krúttlegt. Hann er að verða voðalega stór og er ekkert smá hugrakkur. Honum fannst skemmtilegast að reyna að leika við einn risastórann Great Dane. Fyrir þá sem vita ekki hvernig þeir líta út þá eru þeir svona:

hahhahaha það var algjör brandari að sjá hann reyna að fá svona risa með sér í leik.
En ég ætla að stökkva útí búð og kaupa mér öl svona í einmanleikanum :)
Ég læt betur vita hvernig gengur hjá Jökli þegar ég heyri eitthvað.

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.12.2008 17:00:33 / stinaogjolli

Gleðileg jól!!!!

Ææææ ég ætlaði að setja inn myndir og læti en tölvan mín gaf sig í fyrradag þannig að það verður að bíða betri tíma.
Í gær var brjálæðislega góð humarsúpa sem tók þó nokkra klukkutíma. Besta súpa sem við höfum smakkað.
Svo í dag er það hamborgarhryggur og á morgun hangikjöt :D Allt að gerast í eldamennskunni maður. Þetta verður skrautlegt. En ef maður getur gert himneska humarsúpu þá hlýtur hitt að vera ekkert mál. Jújú.

En jæja. Gleðileg jól elskurnar og takk fyrir árið sem er að líða. Það verður gaman að sjá hvar í heiminum við munum búa á næsta ári!!!
Hafið það gott og borðið hressilega yfir ykkur.

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.12.2008 07:16:10 / stinaogjolli

Útskrift

Jæja, he did it. Strákurinn bara útskrifaðist í dag :)
Við vöknuðum eldsnemma og dressuðum okkur upp. Jökull fékk lánaðan svartan kufl og hatt hjá Taylor og við lögðum öll af stað upp í colisseum. Við komum fyrst við á Wafflehouse og fengum okkur pönnukökur. Doldið bandarískt.
Þegar við komum þangað sem athöfnin var sáum við fljótt að það voru allir í bláum kufli og með bláan hatt. Mjög skemmtilegt og Jökull panikaði all verulega. Hann hótaði að fara bara heim og taka ekki þátt í athöfninni og læti hahaha hann róaðist nú niður strax og fann einhvern sem var að selja svona búninga og reddaði málunum :)
Athöfnin var ógeðslega löng en það var samt æðislegt að sjá Jökul taka við skírteininu sínu og svona.
Eftir athöfnina drifum við okkur heim og Zizou og Keano tóku á móti okkur með háværum kvörtunum (þau voru sko ekki sátt við þessa meðferð á sér að vera skilinn eftir í búrinu í svona marga klukkutíma). Við fórum nú í smá göngutúr til að kaupa smá frið frá þeim og fengum okkur svo geðveikar veitingar. Við vorum með súkkulaðiköku, brauðrétt, kókoskúlur, ostaslaufur, tortillakökur ala Ingunn, smákökur og eitthvað meira sem ég man ekki.
Um kvöldið fórum við síðan á Red Lobster út að borða. Við fengum okkur humar sem var geðveikt góður.
Þetta var alveg æðislegur dagur í alla staði :)
Þá eru það bara jólin JEI!!!!

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.12.2008 06:42:14 / stinaogjolli

ATH

Ég er búin að setja myndir inná www.zizouogkeano.dyraland.is af hundunum. Endilega kíkið á þær og kvittið fyrir ykkur :D
Ég er líka búin að baka eins og brjálæðingur. Það sem komið er núna er 6 föld uppskrift af súkkulaðibitasmákökum (það eru bara nokkrar kökur eftir), brauðréttur, tortillakökudæmið hennar Ingunnar, lakkrísbitakökur, snickerskaka og ostaslaufur. Þetta er líka fyrir útskriftina hans Jökuls sem er á fimmtudaginn :D JEI!!!! Ég á eftir að baka svona 6 falda uppskrift af súkkulaðibitasmákökum, pönnukökur, kókoskúlur og rjómatertu.
Þannig að jólin mega alveg fara að koma núna mín vegna :) Við erum með mandarínur, smákökur, machintos, hnetur og fullt af nammi.
Svo gaf ég Jökli championship manager þannig að hann er ekki viðræðuhæfur og verður ekki næstu mánuðina. Það er víst mjög jólalegt hjá honum.
En já, það sem er næst á dagskrá hjá okkur er útskrift, útað borða í humar, jólin, brettaferð uppí Smokemountains og ef til vill skoða eitt eða tvö indjánaþorp og chilla nógu helvíti mikið.

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Dagsetning
9. febrúar 2010
Heimsóknir
Í dag:  11  Alls: 32372