hálf klikkaður þá veit ég ekki hvað... ég og Jökull vorum að
koma af myndinni The number 23 með Jim Carrey og mæli ég þvílíkt
vel með henni... það heppnaðist ekkert smá vel hjá honum að leika
svona alvarlega persónu. Alla vegna þá er mikið talað um töluna 23
í myndinni og hvað hún er út um allt.... þannig að útaf því að við
erum svo heilbrigð þá ákváðum við að athuga hvort að við myndum
finna töluna 23 í kringum okkur, þegar við komum heim. Niðurstaðan
var hálf skuggaleg.... fullt nafn Jökuls er 23 (þá er t.d. a=1, b=2
o.s.frv. og síðan leggur maður það allt saman og þá kom sem sagt
221 sem er 2+21 eða 22+1 sem er 23) og hann náttúrulega var alltaf
númer 23 í KR.... húsnúmerið okkar er 2111 eða 21+1+1=23.... hann
verður 23. ára á þessu ári.... og bílplatan okkar kom út 32 sem er
23 reversed!!!!!! Já gott fólk...... talan 23 hefur náð valdi á
Jökli og erum við í þessum töluðu orðum að reyna að byggja upp
varnarvegg til að reyna að halda henni frá!!!! Og svo útaf því að
við erum endanlega búin að missa vitið þá athuguðum við hvort að
talan væri nokkuð að reyna að ná Garpi líka á sitt vald (þeir eru
svo miklir tvíburar kallarnir) og hvað haldið þið.............
nafnið hans Garps er líka
23!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Já ég
veit.... þetta er svakalegt!! Og ef þetta er ekki nóg þá ef við
teljum JökullogKristín saman þá eru það 203 sem er 20+3=23!!!!
Úfffff
En alla vegna..... svona á meðan þið eruð að jafna ykkur eftir
þessar rosalegu staðreyndir þá ætla ég að fara út í aðeins
heilbrigðari hluti! Lífið gengur bara mjög vel hérna... ég er
alltaf að læra... er farin að hlaupa 30 mín. á dag (stefni að 40
mín fyrir Bahamas), Jökull er alltaf á æfingum og orðin þvílíkt
massaður! Svo var ég að komast að því að ég þarf að mæta í tíma 12.
- 15. mars þannig að ég var að færa flugið mitt frá 16. til 11.
mars þannig að það eru bara tvær vikur í að ég komi heim!! Og svo
er smá möguleiki á að Jökull fái leyfi til að koma aðeins fyrr en
7. maí heim þannig að þetta er allt að bresta á. Við ætlum að vera
heima hjá mér í sumar og láta mömmu og pabba dekra við okkur
og reyna að safna smá pening... ekki veitir af... hann er svo
high-maintenance kallinn
En það er aldrei að vita nema maður
nýti sér Joey-herbergið hjá Garpi og Ingunni.... hey já... þau eru
búin að kaupa sér íbúð í Kópavoginum sem er ennþá að vera að byggja
og virkar geðveikt flott þannig að maður verður nú mikið þar í
sumar í grillveislum og Friends-keppni.... djöfulli munum við rústa
ykkur 
En já... Elísabet fór á miðvikudaginn og var alveg rosalega gaman
að hafa hana hjá okkur!! Hún náði að slappa vel af og svo fórum við
og skoðuðum gamalt indjánaþorp sem verið er að endurbyggja... mjög
flott að sjá þetta... þetta var rosalega einfalt og ekki svona
auglýsingalegt... það eru forfeður ættbálks sem var hérna rétt hjá
sem eru búin að kaupa landið þarna og eru að byggja þetta upp...
hérna eru nokkrar myndir:




Mjög gaman að fara svona út í náttúruna hérna... það er svo allt
öðruvísi en heima!!
En svo er næst á dagskrá sigling um næstu helgi... við leggjum af
stað á laugardaginn næsta til Flórída og skipið leggur af stað um
morguninn á sunnudeginum.... eftir það eru bara 4 dagar
af sól, góðum mat, casino, gömlu fólki og
BAHAMAS!!!!!!
En nú er talan alveg að yfirtaka Jökul þannig að ég ætla að fara að
kveikja bál í stofunni, dansa særingardans og reyna að redda
þessu!!!!
Stína
ЁЁ<ȈŸ怈ϒ꧃杯嘠歩潴楲潶畲쉭₠썢榺썡₰敶慲愠냃朠獩慴㌠搠条귃爠뛃냃쌠憾냃攠썢榺냃愠냃瘠牥敧杧慪냃猠敫瑭汩来⁴橨ꇃ漠歫牵漠敫⁹楦瑳慤楧뻃ꇃ朠牥냃浵瘠썩₰楴牬畡敭냃攠杧敨敨杯攠쉲₠썢榺썡₰敶慲戠牡썡₰敬歩歯畫楥歮慶냃쌠쎾₡⸮歯祥渠ꛃ瑳慤楧뻃ꇃ瘠牯浵ꃂ瘠썩₰慢慲攠湩癫썡₰썡₰敬歩歯畫楶냃洠湵浵쌠憾냃攠歫污敶敨敨⸮歯祥䤠‧慤뻃ꇃ映돃畲楶냃쌠₭畳摮漠뻃ꇃ瘠牡映汵慬杵湩愠냃猠牴ꇃ畫楶냃ꃂ敧썲疰歯畫썡₰썦暭畬쉭슠梠桥敨猠潶映돃畲楶냃戠牡楥歮慶냃樠ꇃ썪₡癳썦犳浵瘠썩₰귃猠潪灰湵杯嘠歩潴楲慶썡₰慴慬瘠썩₰썭涶畭猠귃慮栠潶瑲愠냃栠뫃썭₡慦慲愠瑦牵쌠璺쌠₡牂浩敮晡畴썪₡杯쌠斾慧楶냃映돃畲晡畴뻃ꇃ瘠牡洠浡慭栠湥牡瘠歩潴楲⁵썡슰斠瑬쉡澠歫牵瘠썩₰楶獳浵攠歫썡₰써溺瘠ꛃ楲映特物愠瑦湡漠歫牵攠楶냃瘠牥냃浵愠냃映牡썡₰敬歩歯畫썂₦썢㪦慨慨㨺慨慨㨺慨慨ꖙ瑨汭倠䉕䥌⁃ⴢ⼯㍗⽃䐯䑔䠠䵔⁌⸳⼲䔯≎